Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
8.12.2007
Deja vu all over again...
Þessi endurteknu átök í Musa Qala minna óþægilega á atburði í Fallujah í Anbar héraði í Írak árið 2004. Þar var borgin nánast undir í töluverðum átökum í Apríl en pólitískar aðstæður, og léleg upplýsingastefna, leiddu til þess að bardögum var hætt rétt áður en yfir lauk og íröskum hershöfðingja leyft að "taka við borginni" til þess að stilla til friðar. Svonefnd Fallujah herdeild varð hins vegar í besta falli máttlaus og í versta falli hliðholl andspyrnuöflunum í borginni og hún varð aftur á svipstundu griðastaður, pyntingamiðstöð og sprengjuverksmiðja sem ógnaði nærliggjandi svæðum (þmt Bagdad). Fjölþjóðaliðið (bandaríska landgönguliðið) neyddist siðan til þess að taka borgina í Nóvember sama ár þar sem friðþægingarstefnan beið algert skipbrot.
Afleitt er að sjá söguna endurtaka sig, þó Bretar séu hér i aðalhlutverki og hafi ekkert lært eftir hina miklu krítík sem þeir beindu, ómálefnalega, gegn landgönguliðinu í Fallujah.
Hart barist í Afganistan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2007
UBL
Enn reynir UBL að reka fleyg milli Bandaríkjamanna og Evrópuríkja en þessi upptaka er eiginlega merki um skilningsleysi jíhadistanna á pólitísku landslagi á vesturlöndum nú um stundir. Ljóst er þó að afganska uppbyggingin gengur ekki vel og ósigur blasir við (sjá færslu að neðan um Verlorene Siege). Þetta kall sádans er þannig hentug áminning til þeirra ríkja sem eru að missa þrek og sýnir þeim hvað er í raun í húfi í Afganistan. Valið milli talíbanastjórnar og lýðræðisstjórnar Karzai, með öllum annmörkum hennar, er eftir allt ekki vandasamt þegar gott fólk á í hlut.
Evrópa yfirgefi Afganistan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.11.2007
Styðjum Musharraf
Neitar samstarfi við Musharraf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.11.2007
Keisarinn er dauður... lengi lifi keisarinn
Kasparov í 5 daga fangelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.11.2007 kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2007
Pólverjar mega missa sig
Ekki er mikil eftirsjá að pólsku herliði sem fer frá Írak, þeir hafa ekki getað látið til sína taka og hafa enga sérgetu sem mikilvæg er. Allur almenningur á Íslandi veit kannski ekki að allt alþjóðalið í Írak starfar í umboði (einróma umboði) öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Pólverjar ætla að kalla hermenn sína heim frá Írak | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hér blasir við að þegar öllu er á botninn hvolft er þjóðum heims sama um örlög íbúa Darfúr sem búa við hernað skæruliðasveita Janjaweed, en þeir ganga einmitt erinda stjórnvalda í Súdan. Sumir tala kaldhæðnislega um að engir hagsmunir, s.s. olía, sé í Súdan og það standi þessu verkefni fyrir þrifum en hluti vandans er bara sá að mannúðaríhlutanir eru erfiðar og hættulegar og vestrænir borgarar (og kjósendur) eru fljótir að missa áhugann á slíkum verkefnum. Munum hvernig háleit markmið í Sómalíu molnuðu þegar menn horfðust í augu við grimmdina og hjaðningavígin þar.
Mennirnir á myndinni að neðan verða sigurvegarar.
SÞ segir mögulegt að friðargæsluverkefnið í Darfur misheppnist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.11.2007
Enterprise, Truman, Nimitz og Ahmadinadjad
Jæja þá verður fróðlegt aftur að fylgjast með skipakomum við Persaflóa (eða Arabíuflóa eins og arabískir viðbúendur kjósa að kalla hann - þarna hefur allt einhverja dýpri merkingu). Enterprise hefur verið staðsett á svæðinu og núna í byrjun nóvember bættist Harry S. Truman í hópinn. Nimitz er væntanlegt von bráðar og þá verður áhugavert að sjá hvort Enterprise heldur heim strax eins og ráð er fyrir gert.
Einnig eru á svæðinu landgönguskipin Wasp og Kearsarge (Wasp kom einmitt til Reykjavíkur í fyrra) sem bera sitt hvort MEU.
Hvíta Húsið fer væntanlega að kynna upplýsingar sínar um kjarnorkuáætlun Írana á næstunni til þess að gera lokatilraun til þess að ná víðtækum stuðningi um alþjóðlegar refsiaðgerðir. Um leið og það mistekst gæti farið að draga til tíðinda.
12.11.2007
Gott fordæmi eyðimerkurrefsins Gaddafi
Þetta ættu Íranir að skoða. Valið miðað við núverandi stefnu þeirra er einmitt að öðlast á nýjan leik eðlilega stöðu í alþjóðakerfinu eða halda áfram á núverandi braut með tilheyrandi hörmungum fyrir írönsku þjóðina. Þvermóðskuleiðin er gjaldþrota.
Að öðrum kosti mætti segja, Teheran delenda est...
Sarkozy mun funda með Gaddafi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.11.2007
Hisballah hafa náð vopnum á ný
Nasralla fer ekkert með fleipur. Samtökin sem stofnuð voru og studd eru af Írönum (Quds þjálfarar eru virkir innan samtakanna) hafa náð að endurvígbúast eftir eldflaugaskothríð sína gegn Ísrael í fyrra. Þetta staðfesti Ban Ki Moon í nýlegri skýrslu og þá ættu menn að fara að horfast í augu við hvernig þessi íranska "legion etranger" herjar á Ísrael fyrir herra sína. Í skýrslunni segir:
"According to the Government of Israel, Hizbullah has rearmed itself to a level higher than that which it had maintained prior to last years conflict. It alleges that hizbullahs long-range rocket force is stationed in areas north of the Litani River and that most of the new rockets supplies, including hundreds of Zilzal and Fajr generation rockets, have a range of 250 kilometres, enabling them to reach Tel Aviv and points further south. Israel also claims that Hizbullah has tripled its shore-to-sea C-802 missiles and has established an air defence unit armed with ground-to-air missiles. Israel has stated that the nature and number of weapons in Hizbullahs control constitutes a strategic threat to its security and to the safety of its citizens.
Several speeches made by the Secretary-General of Hizbullah, Hassan Nasrallah, in the past few months seem to confirm these Israeli claims. Reports of rearming are a cause of great concern, posing serious challenges to the sovereignty, stability and independence of Lebanon and the implementation of resolution 1701 (2006). Senior Hizbullah officials have stated that comments by Hassan Nasrallah were made to serve as a deterrent to aggression rather than as threats to Israel."
Þessum herstyrk verður beitt til hefndarárása á Ísrael um leið og valdbeiting gegn Íran hefst.
Hezbollah býður Ísrael byrginn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.11.2007
Persapúsl að klárast
Áfram unnið að því að ná friðsamlegri lausn á deilunni við Íran | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |